Fasteignasalan Garður
Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar hjá fasteignasölunni Garður kynna til sölu
Glæsilegt sumarhús sem bíður uppá mikla útleigumöguleika á frábærum stað í Húsafelli.Vel skipulagt
78,2 m² sumarhús við Kiðárbotna 19 með rúmlega
60 m² verönd, heitum potti, eldstæði og gestahúsi á kjarri vaxinni 1250 m²
eignarlóð í Húsafelli.Í húsinu eru
sex svefnherbergi.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 78,2 m² en þar af er geymsluskúr 5,2 m². Á staðnum er tæplega 15 fm geymsla í byggingu sem er ekki inní fermetratölunni. (gólfflötur bústaðar er stærri en fermetratala gefur til kynna)
Sækja söluyfirlitNánari lýsing:Forstofa: Parket á gólfi gengið inn á baðherbergi, svefnherbergi, geymslu og aðalrými.
Baðherbergi: Snyrtilegt með góðri innréttingu með handlaug wc og sturtuaðstöðu.
útgengi á góða verönd frá baðherberginu.
Herbergi: með parket frá forstofu.
Geymsla: Lítil geymsla með glugga, hillum inn af anddyri, tengi fyrir salerni.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting með uppþvottavél í opnu rými, parket á gólfi.
Stofa/ borðstofa: Opið rými með parket á gólfi.
Innaf opna rýminu eru
fimm svefnherbergi.Í heildina eru því
sex svefnherbergi sem öll eru parketlögð og eitt þeirra er með útgengi í garð fyrir aftan hús.
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupunum.
Hitaveita er til staðar.
Gestahús við hliðin á búðstaðnum.
Heita pottur, falleg grillaðstaða og stór verönd.
Góð staðsetning og stutt í alla þá þjónustu sem Húsafell hefur upp á að bjóða.
Helsta þjónusta er á svæðinu það er veitingastaður, matvörubúð, þjónustumiðstöð, gönguleiðir, sundlaug, strandblak, glæsilegur 9 holu golfvöllur, tjaldsvæði með aðgangi að sturtum, salerni, þvottahúsi og rafmagni.
Ótrúlegar náttúruperlur, eins og Langjökull, Arnarvatnsheiði, Hraunfossar, Barnafossar.Frekari upplýsingar um svæðið má nálgast á vefsíðu Húsafells:
https://www.husafell.is/Upplýsingar gefa: Díana Arnfjörð, löggiltur fasteignasali s. 8959989 netfang: [email protected]
Hulda Ósk Baldvinsdóttir, löggiltur fasteignasali s:7712528 netfang: [email protected]
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður