Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir í einkasölu: vel skipulagð fjögurra herbergja íbúð með sérinngang og góðum sólpalli í nýlegu húsi (2016) á besta stað í Hafnarfirði.
Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með ástandsyfirlýsing, teikningu, söluyfirliti ofl. Íbúðin skiptist í lokað anddyri, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 114,60 fermetrar, þar af er geymslan 8,50 fermetrar.
Nánari lýsing:Anddyri: Góð lokuð forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi, efri skápum ágætis skápaplássi. Bakaraofn og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Bjart og gott samliggjandi rými. Mjög gott pláss fyrir borðstofuborð og sjónvarps aðstöðu. Frá stofunni er útgengt á stóran pall sem snýr í suð-vestur.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt klósett og flísalögð walk-in sturta. Snyrtileg baðinnrétting við vask og skápur.
Þvottahús: Flísar á gólfi og skolvaskur.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, útivistarsvæði og golfvöllinn.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasaliNetverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður