Fasteignasalan Garður
Fasteignasalan Garður og Einar Örn Ágústsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu mjög snyrtilega og vel skipulagða 52 fm ósamþykkta íbúð í kjallara í reisulegu húsi við Reynimel 50, 107 Reykjavík.Íbúðin skiptist í anddyri, svefnherbergi, eldhús, stofu, herbergi, geymslu og baðherbergi.
Nánari lýsing: Gengið er inn baka til, komið inn í snyrtilega sameign hússins og gengið þar niður á gang þar sem inngangur í íbúðina er.
Anddyri með fatahengi og aðgengi í aðrar vistarverur íbúðar.
Stofa er rúmgóð og björt með góðum glugga.
Eldhús er með snyrtilegri L-laga viðarinnréttingu og flísum á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergi er rúmgott og bjart með fataskáp.
Hol fyrir framan baðherbergi er gluggalaust en hægt að nýta t.d. sem vinnuaðstöðu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með glugga, sturtu, handklæðaofni og baðinnréttingu ásamt aðstöðu og tengi fyrir þvottavél.
Plastparket á gólfum alls staðar nema í holi fyrir framan baðherbergi og inni á baðherbergi, þar eru flísar.
Lítil geymsla undir stiga i sameign fylgir íbúðinni.
Allar nánari upplýsingar gefur Einar Örn Ágústsson í síma 888-7979 eða
[email protected] - Löggiltur fasteignasali.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður