Sveinbjörn Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 892-2916
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 693-2916
Álfkonuhvarf 55, 203 Kópavogur
67.900.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
100 m2
67.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
48.910.000
Fasteignamat
65.700.000

Fasteignasalan Garður 

Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir í einkasölu: fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í góðu lyftuhúsi að Álfkonuhvarfi 55 í Kópavogi. 
Fasteignamat næsta árs: 73.150.000 kr. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í upphitaðri bílageymslu.
 
Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 100,4 fermetrar, þar af er geymslan 11,4 fermetrar. Einnig fylgir sérmerkt bílastæði í upphitaðri bílageymslu.

Nánari lýsing :
Anddyri: Flísar á gólfi og góður fataskápur.
Barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskáp og glugga sem snýr í suðvestur. 
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og efri skápum. Bakaraofn í vinnuhæð og tengi er fyrir uppþvottavél. 
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými. Bjart og gott rými með glugga í tvær áttir. Frá stofunni er útgengt á suðvestur svalir. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Nýlegur sturtuklefi, vegghengt salerni og snyrtileg baðinnrétting við vask með ágætis skápaplássi.
Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar. Flísar á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 

Annað:
Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski -
 löggiltur fasteignasali
[email protected]  /  sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali


Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.