Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir í einskasölu: bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð í góðu húsi að Lindasmára 9 í Kópavogi.
Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 97,1 fermetrar.
Smelltu hér til að sækja kynningarbækling strax. Nánari lýsing:Anddyri: Fataskápur með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott, parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með fataskáp.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með pláss fyrir fataskáp.
Eldhús: Snyrtileg hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, flísar milli efri og neðri skápa. Borðkrókur í eldhúsinu og gluggar.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi björtu og góðu rými. Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt á svalir.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Baðkar með sturtu. Baðinnrétting með efri skáp við vask.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara með skúffum og skápum.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Þá er Íþróttamiðstöðin Fífan rétt hjá og Smáralindin í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir:
Karólína Íris - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 772-6939
Instagram: Karólína fasteignasali
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali
Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður