Fasteignasalan Garður
Baldur J, löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu: mikið endurnýjuð og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð með sér inngang á fyrstu hæð að Austurgötu 9 á besta stað í miðbæ Hafnarfjarðar. Íbúðin var endurnýjuð fyrir fjórum árum og er sem ný. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús/stofu, fallegt baðherbergi og stóra geymslu sem getur nýst vel sem skrifstofa eða hobbý herbergi. Sér bílastæði með snjóbræðslu fylgir íbúðinni með möguleika á hleðslu fyrir rafmagnsbíl.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 74,30 fermetrar.
Smelltu hér til að sækja kynningarbækling straxEndurbætur 2019
- Nýjar neysluvatnslagnir í íbúðinni
- Nýjar frárennslislagnir út í brunn
- Nýtt dren
- Endurnýjaðar raflagnir
- Nýjar flísar í forstofu
- Nýtt gólfefni á alla íbúðina.
- Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf
- Nýtt klósett, sturta, innrétting og blöndunartæki
- Ný eldhúsinnrétting og eyja
- Nýr vaskur og blöndunartæki í eldhúsi
- Ný tæki í eldhúsi: helluborð, ofn og innfelldur örbylgjuofn.
Nánari lýsing:Anddyri: Nýjar flísar á gólfi pláss fyrir stóran fataskáp
Hjónaherbergi: Einstaklega rúmgott herbergi þar sem er innangengt í geymslu sem getur nýst sem fataherbergi, skrifstofa eða hobbý herbergi. Fataskápur er í herberginu með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: Ágætis herbergi með fataskáp.
Eldhús: Snyrtileg, svört eldhúsinnrétting með ágætis skápaplássi og lítilli eyju. Svört borðplata og hvítir efri skápar.
Stofa: Stofa og eldhús í samliggjandi rými. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta, vegghengt klósett, tengi fyrir þvottavél og baðinnrétting með efri skáp.
Geymsla: Innangengt frá hjónaherbergi.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu. Örstutt er í iðandi mannlífið í miðbænum og ýmsir viðburðir eru í götunni, Austurgötuhátíðin á 17. júní og tónlistarhátíðin Heima á síðasta vetrardag.
Bæjarbíó, Bókasafnið, kaffihús, Hellisgerði, jólaþorpið og skautasvellið eru í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir:Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður