Fasteignasalan Garður
EIGNIN ER SELD og er í fjármögnunarferli. Mikil eftirspurn eftir sambærilegri og stærri eignum.
Smelltu hér ef þú átt sambærilega eign eða hafðu samband við Baldur í síma 450-0000 / [email protected]Baldur fasteignasali kynnir í einkasölu tveggja herbergja íbúð með suður palli að Heiðarholti í Reykjanesbæ. Íbúðin skiptist í anddyri, svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 46,3 fermetrar.
Viðhald og endurbætur:Búið er að endurnýja heitavatnslagnir.
2022 - Hús málað
2020 - Nýtt parket
2020 - Eldhús endurnýjað að hluta
Smelltu hér til að sækja kynningarbæklingNánari lýsing:Anddyri: parket á gólfi og pláss fyrir fataskáp.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting með ágætis skápaplássi. Helluborð og eldavél.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými. Rýmið er bjart og rúmar vel sjónvarpshorn og borðstofuborð. Frá stofunni er útgengt á sér pall sem snýr í suður. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Innrétting við vask og sturtuklefi.
Geymsla: geymsla innan íbúðar.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður