Opið hús: 27. júní 2022 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Þórðarsveigur 30, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 01 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 27. júní 2022 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Fasteignasalan Garður sími 562-1200 kynnir:
Falleg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með útgengi út í garð frá svölum ásamt stæði í lokaðri bílageymslu.
Eignin skiptist í : Forstofu, eldhús, stofu, svalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, sérgeymslu í sameign og stæði í bílageymslu.
Nánari lýsing. Forstofa: Opið rými með fataskáp.
Eldhús: Er opið með ljósri innréttingu, ofn í góoðri vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og glugga með opnalegum fagi.
Stofa: er opin og rúmgóð með útgengt á svalir sem eru með tröppum niður í stóran sameiginlegan garð.
Tvö herbergi: Bæði með góðum skápum sem ná upp í loft, Steðsett sitthvoru megin við baðherbergi og þvottahús.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt og með góðri hvítri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahús: Er staðsett innan íbúðar, flíasalagt með glugga og vask.
Í sameign er
sérgeymsla ásamt rúmgóðri sameiginlegri
hjóla- og vagnageymslu. Bílakjallari þar sem íbúðin á
sérmerkt bílastæði og pláss í sameiginlegri dekkjageymslu. Gól
Sæmundarskóli og leikskóli eru í göngufæri. Útivistarsvæði eru allt í kringum hverfið og stutt er í helstu þjónustu og stofnbrautir á höfuðborgarsvæðinu.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður